Á degi tvö í Ponticherry fórum við aftur í Franska bakaríið að fá okkur smá morgunmat fyrir daginn. Eftir morgunmatinn fórum við af stað í hugleiðsluþorpið. Þorpið samanstendur af 2000 manns og er þetta samfélag útaf fyrir sig. Í samfélaginu er háskóli sem kenni hugleiðslu ásamt því að þar er skóli fyrir börn þeirra sem stunda nám við hugleiðslu þarna. Við löbbuðum að hugleiðslukúlunni, en hún er gyllt að utan og er alveg risa stór. Þar inni er víst allt fullt af herbergjum og ljós skín í miðjunni.
Næsta stopp var sundlaugin. Við vorum ekkert smá ánægð með það að komast loksins í sund. En þegar við mættum á svæðið þá voru tvær sundlaugar. Ein fyrir karlmennina og ein fyrir konur og börn. Núna var þó sundlaugin fyrir konur, börn og Tóta. ;) Í sundlauginni voru fimm konur allar klæddar í Sari. Hlýtur að vera rosalega notarlegt að baða sig í fullum klæðum. Eftir að við vorum búin að vera að sóla okkur á bakkanum í smá stund fórum við að taka eftir áhorfendum úr hinni sundlauginni og svo bara tóku þeir upp myndavélar og fóru að taka myndir, takk fyrir pent.
Þennan dag náðum við líka aðeins að versla. Skelltum okkur í Supermarkað og töpuðum okkur létt þar. Við Sunna fórum líka út í það að kaupa okkur stuttbuxur fyrir Kenía. Tek það fram að þetta eru fyrstu stuttbuxurnar í mínum fataskáp og það er góð ástæða fyrir því.
Þann 28. janúar byrjuðum við daginn enn og aftur í Franska bakaríinu. Þaðan fóru síðan allir í sína áttina. Við fórum með Benediktu til Thorapady. Rútubílstjórinn var með nokkrar lausar skrúfur og flautaði non stop alla leiðina. Síðan þegar við komum á leiðarenda sagðist Benedikta aldrei hafa verið svona snögg á leiðinni. Þegar til Sanjay var komið þurftum við að bíða smá stund eftir Autonum okkar. Við tók síðan hálftíma ferð með Auto á mjög holóttum vegum. Við Íslendingar ættum heldur betur að fara að hætta að væla yfir því hvernig hringvegurinn okkar er. Hann er í topp ástandi þó hann sér ekki lokinn miðað við vegina hérna.
Það var rosalega vel tekið á móti okkur og við fengum strax góðan mat að borða. Við gáfum síðan strákunum púslu spil og fórum í nokkra leiki með þeim.
Í gær vöknuðum við síðan og fórum beint í Yoga. Eftir morgunmatinn fórum við síðan að mála tvö herbergi. Strákarnir á heimilinu kepptust við að fá að hjálpa okkur og endaði það með hálfgerðum ósköpum. Meðan við borðuðum hádegismat héldu þeir áfram og gólfið inni í einu herberginu var eins og eftir málningaslag og stór málningapollur á gólfinu fyrir utan. En allt er gott sem endar vel. Við þrifum þetta upp og kláruðum að mála það sem við gátum. Ánægðar með verk dagsins skelltum við okkur upp á þak og fórum í sólbað (þó sólin hafi nú mestmegnis falið sig á bak við skýin).
Í dag fengum við vatnsmelónusafa í morgunhressingu, kvöddum strákana þegar þeir skunduðu í skólann og fengum okkur síðan morgunmat. Til að nýta sólina áður en hún yrði of heit ákváðum við að skella okkur upp á þak aftur og fá smá tan. En nei, sólin var ekki að meta það og fór aftur í felur á bak við skýin. Við eigum klárlega ekki að fá smá lit á meðan við erum hérna.
Eftir hádegismatinn fórum við með eldabuskunni henni Viktoríu í verslunarferð til Sanjay þar sem okkur vantaði málningu til þess að klára seinna herbergið. Autoferðin þangað var mjög spes. Eftir svona 10 mínútna akstur vorum við orðin 8 í þessum litla bíl. Á leiðinni hittum við líka fullt af krökkum sem voru mjög spenntir að sjá okkur og voru einstaklega glöð að fá að taka í höndina á okkur. Sanjay er ekki beint uppáhalds borgin mín. Þar er mjög skítugt og fólk og dýr út um allt. Mikið ryk er í loftinu og allt er einhvernveginn svo óskipulagt. Leiðin til baka var heldur ekkert sérstaklega góð og samþykktum við Sunna að þetta væri einn versti ökurmaður sem við hefðum ferðast með.
Núna rétt í þessu vorum við að klára að mála seinna herbergið og lýtur þetta alveg ljómandi vel út.
Í kvöld erum við síðan að fara að skella okkur í Sarí og dansa með strákunum. Við Sunna erum náttúrulega að rifna úr spenningi yfir því.
Reyni síðan að skella inn einhverjum myndum áður en við leggjum af stað til Chennai á morgun.
Bestu kveðjur,
Hrund.

Ég er ekki hissa þótt sólin hverfi þegar þið farið í sólbað sólin fær ofbirtu í augun .Gaman að lesa bloggið hjá þér og getað fylgst með þér kossar og knús kveðja mammma
ReplyDeleteGott að heyra(lesa ) að allt gangi vel hjá þér og gaman að fá að fylgjast með blogginu þinu :)
ReplyDelete