Tuesday, January 10, 2012

Brottfaradagur.

Þá er víst komið að því,
ferðalagið er að hefjast eftir tæplega sjö tíma og ég er enn voðalega róleg yfir þessu öllu. Búin að pakka öllu svo nú er bara að bíða eftir að tíminn líði. Fór í einstaklega langa sturtu áðan (sorry Berglind) þar sem þetta var síðasta sturtuferðin á Íslandi í tvo mánuði og sé ég fram á mis góðar baðaðstöður úti.
Miða við veðrið núna þá sé ég fram á að ævintýrið hefjist strax á Íslandi með bílferðinni út á flugvöll í blindbil. Woop woop!

Fyrir þá sem vilja vita hvernig ferðalgið er þá hefst það með flugi frá Keflavík til London. Þar mun ég vera í u.þ.b. 12 tíma og fer þá í flug til Istanbul. Þaðan fer ég síðan með flugi til Mumbey (Bombey) og lendi þar um 4 leitið (að staðartíma) aðfaranótt 12. janúar. Síðasta flugið er síðan frá Mumbey til Chennai þar sem við lendum um 9 leitið (að staðartíma) að morgni 12. janúar.

Þann 3. febrúar fer ég til  Kenía.

Ég ætla að reyna að blogga sem mest á meðan ég er úti en þar sem ég veit ekki alveg hvernig tölvu og net aðstaðan er á sumum af stöðunum þá ætla ég bara að gera mitt besta þegar ég kemst í tölvu.

Kveðja,
Hrund.

4 comments:

  1. omg! ég get þetta ekki....fráhvarfseinkenni! Elska þig:) nenniru ekki að skila bara kveðju frá mér til allra svo að ég sé alveg smá með þér :P brosa og vera sjúklega sæt:) ást ást hlakka til að lesa meira, meira og meira! er alveg fastagestur hérna svona svo þú vitir það bara!

    ReplyDelete
  2. Mútsí mús vona að þú eigir betri nótt í nótt en þá fyrri....... ætli þú sért ekki búin að eyða öllum kakkalökkum :) koss og knús

    ReplyDelete
  3. Hugsa stíft til þín núna. Palli í útvarpinu að syngja lagið sem hann samdi fyrir þig ;) Vonandi hefur þú það gott úti og njótir og lærir :)

    ReplyDelete
  4. Thank You and I have a super offer you: How Much For House Renovation Uk hgtv home improvement

    ReplyDelete